Beint á blogg

Um

Fréttastofa Sannleikans, frétta- og þjóðmálamiðill, hóf göngu sína á Netinu á hádegi 1. desember 2024.

Sannleikurinn er frekar lítið háður vefmiðill sem stundar vændi, frétta- og upplýsingamiðlun. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt.

Útgefandi Sannleikans er móðir þín.

Auk fréttasíðunnar starfrækir Sannleikurinn besta spjallborð Internetsins, þar allt leyfist á meðan það er fyndið.

 

Markmið

Markmið Sannleikans er að verða einhvern tímann leiðandi afl í samfélaginu. Vonumst við til þess að sú stund komi upp að með tekjum af auglýsingasölu getum við greitt lesendum fyrir skrif á síðuna og fært jafnvel út kvíarnar í útvarp eða þáttagerð á netinu.

Sannleikurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni og munu allar milljónirnar sem síðan mun þéna í framtíðinni vera notaðar í stækkun hennar.

Hvaða hálfviti sem er getur orðið hluti af Fréttastofu Sannleikans. Það eina sem þarf að gera er að segjast vilja skrifa fréttir, pistla, gagnrýni eða hvað sem er hér og við höfum samband fljótlega.

Starfsmenn

Eigandi
Mjálmar Breimfjörð - Kvótagreifi

Ritstjórn
Davíð Oddsson - Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fyrrverandi forsætisráherra og fyrrverandi seðlabankastjóri. Elskaður og dáður af öllum.
Jón Ásgeir Jóhannesson - Útrásarvíkingur

Fréttastjóri
Tyrannosaurus Kex

Fréttamenn
Snæfríður Íslandssól
Skúli fógeti
Einn gamall en nettur
Evrópu-Unnar
Snær Blær
Arnar Einar Unnarsson
Rökkvi Vésteinsson

Stjórnendur á Spjallborðinu
Veðurhermaðurinn
Tigra
Pálnatóki
Slöngvi
Villimey
Hvæsi