Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarinnar
Hópur hryðjuverkamanna reyndi að lama fjarskiptanet landsins í nótt með því að sprengja upp fjarskiptamastur í Öskjuhlíð.
Svokallaðir Moggabloggarar hafa lýst árásinni á hendur sér og segja þeir árásina vera aðeins byrjunina á því sem koma skal.
Er hópurinn mjög óánægður með breytingarnar sem gerðar hafa verið á vef Morgunblaðsins, en bloggið hefur verið aðskilið fréttasíðunni, og berst hann fyrir því að bloggið sameinist fréttasíðunni aftur.
Ætlar hópurinn, að sögn Jens Guðs forprakka hans, að beita öllum tiltækum ráðum svo öryrkjar og atvinnulausir geti áfram skrifað málefnalega pistla um Icesave og efnahagsmál, tengt það fréttum og sýnt alþjóð.
En 90% prósent bloggaranna eru á einhverskonar bótum.
Ekki tók langan tíma fyrir tæknimenn að laga skemmdirnar enda tilræðismennirnir hálfgerðir aular.


Comments
þroskaheftir moggabloggarar
Í fyrsta lagi eruð þið það vitlausir að ef þið séuð að skemma samskiptaloftnet þá eruð þið að lama fjarskiptakerfi lögreglunnar og björgunnarsveitanna, fyrirtækin sem bjóða uppá internetið svo þið hálffötluðu bótahafar getið bloggað ykkar væl tapa stórum pening á þessu og saklaust fólk sem er í vinnu er kallað út um miðja nótt til að laga þetta fyrir ykkur.. þetta er það mest sjálfselskasta sem ég hef séð og það ætti að taka ykkur af þessum bótum ( ekki alhæfing aðeins þessa moggabloggara sem standa undir þessum árásum) hvað myndiru gera ef þú lendir í slysi uppá jökli , þarft aðstoð björgunarsveitanna og kerfið þeirra sé lamað, þar sem þið eruð nú 90% öryrkja þá hljótið þið stundum e-h af ykkur að kalla á sjúkrabíl en nei það gerist ekki útaf þið eruð að reyna að lama kerfið.. ég mæli með að þið labbið allir inná klósett og hnefið ykkur því þið látið eins og 5 ára krakkar..
váááá hvað ég verð pirraður þegar ég sé þetta..
Ég vona að gaurinn hérna að
Ég vona að gaurinn hérna að ofan sé að grínast. Hann hlýtur að vera moggabloggari.
Svona svona, við lögum þetta.
Svona svona, við lögum þetta. Svo setjum við upp myndavélar.
----
kv. Yohanna
Passaðu þig!
Þú með þitt myndavélaæði kona, ég veit hvar þú býrð!
Niður með
Niður með moggabloggið!
Eintóm vitleysa hvort sem er.
Áfram blog.central.is !!
Baaa. baaa... Baaaaaa...
Baaa. baaa... Baaaaaa...